Hið ljúfa lífKaritas Jónsdóttir
Skólinn byrjaði aftur í dag, og vá hvað það er gott að vera komin aftur í rútínuna! váhh þetta jólafrí var alveg fáranlega rólegt og gott en það er líka fínt að vakna fyrir kl. 3 á daginn og sjá hvað það verður mikið úr deginum hehe! Sólarhringurinn var alveg kominn á hvolf svo það var ansi erfitt að vakna kl. 7 í morgun.
Líst ágætlega á þessa önn, enda stundataflan mjög fín. Nú er bara um að gera að reyna að vera eins metnaðarfull og ákveðin í enda annar og maður er í byrjun hennar hehe ;)
Um helgina var farið í sumarbústað uppi Munaðarnes með stórfjölskyldunni hans Þórðar, vorum í 3 bústöðum, 21 stk alls! 10 börn og 11 fullorðnir. Ekkert smá gaman, farið í göngutúr með allt liðið, leikir, kvöldvaka, you name it! Aðallega þó borðað hehe! ;) Fínn endir á jólafríinu og nú tekur átakið við, Get Ætla Skal! Nú skal ég drattast af stað :S
Bara gulrætur og vatn yfir bókunum !! yeahhhhh right
Bloggaði þetta líka á Myspacinu, bara svona að prófa það dæmi :) Maður er jú svo tæknivæddur!!