verð að bloggaKaritas Jónsdóttir

Ég held ég komist bara ekki hjá því að blogga núna. Asnaðist til að koma til reykjavíkur í tíma, sé mjög svo eftir því núna!!! Gooood hvað sumir kennarar geta verið úti á þekju !!! Krotandi fram og til baka á töflunni og röflandi ofan í bringu á sér...!

En í morgun fékk maður smá slapp í andlitið um að veturinn væri kominn þar sem strætó fór ekki suður fyrstu 3 ferðirnar útaf roki á Kjalarnesinu.... Æjæj ég VARÐ að fara heim og lúlla meira. Það versta var að ég átti að vera að gera hópverkefni um morguninn en komst ekki vegna veðurs! Maður verður víst að bíta í það súra epli að komast ekki alltaf suður, það er þá ókostur við að búa á Skaganum. haha

Núna fer að verða smá brjálæði í skólanum, önnin hálfnuð og verkefnin hrannast upp. Aðeins 8 helgar í próf! OMÆÆÆ!! Próftaflan komin og þau raðast ágætlega upp, er reyndar ekki búin fyrr en 21 des og þá tekur vinnan við, þannig að jólaundirbúningur verður bara að bíða til næsta árs... odemm. Það er meira að segja næturvakt á aðfangadag hjá mér. Kemur í ljós hvort maður verður á lífi eftir prófin og sjá þá til hvað maður vinnur mikið :)


Svona er próftaflan:
12.des: Efnisfræði
15.des: Almenn Efnafræði
18.des: Samfelldaraflfræði
19.des: Rekstrarfræðoi
21.des: Stærðfræðigreining 2b

Sounds good ;)


En Birna hefur rétt fyrir sér, maður nennir bara ekki að bloggar þegar maður er i skóla! Hef líka frekar lítið að blogga um.

Ég er stungin af úr þessum tíma áður en ég hengi mig á tölvusnúrunni!!!

Athugasemdir

1
Birna skrifar:
veistu ekki að ég hef alltaf rétt fyrir mér væna :Þ en í guðanna bænum ekki hengja þig í tölvusnúrunni. Það fer svo ægilegailla með hana :)
19. október 2006 klukkan 02:38
2
Hildur Magg skrifar:
úff alveg öfunda ég þig ekki á að vera búin svona seint í prófum :(
En takk fyrir gærkvöldið sæta... gaman að hitta yikkur ;)
19. október 2006 klukkan 15:02

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hlakkaru til jólanna?

Innskráningar kubbur