EnjoyKaritas Jónsdóttir

Vill bara henda inn besta atriði allra tíma : njótið vel


http://www.youtube.com/watch?v=FjhJthVEc34



Bara 1 próf eftir ;)

KeisKaritas Jónsdóttir

Þegar Heibba er farin að peppa mann í bloggi, þá er e-ð að :P Mjóaparið ekki alveg að standa sig í blogginu síðast þegar ég gáði allavegana....

Jæja ég ætlaði að vera duglegri að blogga en svo sveik ég það bara eins og mér einni er lagið !

Það helsta í fréttum er það að ég er komin með sumarvinnu hjá VGK Hönnun og verð staðsett bara í næsta hús við mig. Verð s.s bara eina mínútu að labba í vinnuna í sumar. Doldið næs það. Frábært að fá vinnu hjá svona stórri og virtri verkfræðistofu, þetta verður spennandi sumar. Geri ráð fyrir því að vera mikið að teikna og dunda mér að læra á forrit mestann part af sumrinu. Tekur smá tíma að verða mellufær á forrit eins og AutoCAD, en þegar það er komið er maður fær í flestann sjó. Svo vonandi fæ ég að prófa einhver fleiri verkefni til að fá smá smjörþef af sem flestu sem við kemur starfi á svona stofu. Eins og ég segi, mjög spennandi og ég hlakka ekkert smá til sumarsins.

Var líka að skoða gamlar myndir og langar að komast í smá form í sumar ! ekkert betra en að synda í sólinni á morgnanna ;) Stefni á það.... dreg Þórð kannski með mér líka í ræktina  ! ... sjáum til hvernig það gengur :P

Annars eru það bara verkefni á verkefni ofan þessa dagana. Held það sé bara samantekið ráð hjá öllum kennurum landsins, hvort sem það er í grunnskóla eða háskóla, að hrúga á verkefnum á sama tíma ! Skemmtilegt það. Reyna að klára sem mest fyrir páska"frí" svo maður geti nýtt það til að læra fyrir prófin en ekki eyða tímanum í verkefnavinnu.

Síðasta helgi var athyglisverð. Við lýsnar gæsuðum í fyrsta skipti eina af hópnum ! Rosalega skemmtilegur dagur og ég hlakka til að sjá þau Ástu og Ármann gifta sig eftir rúma viku.

Held ég hafi það ekki lengra í bili....

Bloggari ársinsKaritas Jónsdóttir

Það er svo langt síðan ég bloggaði að ég var búin að gleyma að ég væri með blogg. Beat that ! Það er m.a.s ennþá jólakönnun hérna inná. Nenni ekki að breyta henni.

En semsagt þá er langt síðan ég bloggaði en ég nenni ekki að blogga e-ja mega færslu núna... ætla hins vegar að reyna að vera duglegri :)

Það helsta sem er í fréttum er að ég er að kafna úr leiðinlegum verkefnum at the moment ... svo er brúðkaup á næsta leiti hjá Ástu og Ármanni. Það verður gaman að gifta fyrstu stelpuna í vinkonu hópnum ;) úje... hlakka til.

Ég bíð og vona með að fá e-ja skemmtilega sumarvinnu, sjáum hvernig fer með það, fingers krossed.

En ég kveð í bili, mjög svo merkilegur tími að hefjast .... zzzZzzz...

Peppið mig upp svo ég verði duglegri að blogga
Adi

Hiđ ljúfa lífKaritas Jónsdóttir

Skólinn byrjaði aftur í dag, og vá hvað það er gott að vera komin aftur í rútínuna! váhh þetta jólafrí var alveg fáranlega rólegt og gott en það er líka fínt að vakna fyrir kl. 3 á daginn og sjá hvað það verður mikið úr deginum hehe! Sólarhringurinn var alveg kominn á hvolf svo það var ansi erfitt að vakna kl. 7 í morgun.

Líst ágætlega á þessa önn, enda stundataflan mjög fín. Nú er bara um að gera að reyna að vera eins metnaðarfull og ákveðin í enda annar og maður er í byrjun hennar hehe ;)


Um helgina var farið í sumarbústað uppi Munaðarnes með stórfjölskyldunni hans Þórðar, vorum í 3 bústöðum, 21 stk alls! 10 börn og 11 fullorðnir. Ekkert smá gaman, farið í göngutúr með allt liðið, leikir, kvöldvaka, you name it! Aðallega þó borðað hehe!  ;) Fínn endir á jólafríinu og nú tekur átakið við, Get Ætla Skal! Nú skal ég drattast af stað :S

Bara gulrætur og vatn yfir bókunum !! yeahhhhh right

Bloggaði þetta líka á Myspacinu, bara svona að prófa það dæmi :) Maður er jú svo tæknivæddur!!

Fariđ varlega!!Karitas Jónsdóttir

Elsku fólk, lesið þessa sögu og farið varlega í umferðinni.

Við erum ekki ódauðleg..
Ég mun aldrei gleyma því, hversu svalur mér fannst þú vera, þegar þú þeyttist eftir Reykjanesbrautinni á 160.kílómetra hraða á klst, á nýja bílnum þínum, sem þú fékkst daginn áður, ásamt ökuskírteininu. Það var eins og brautin hefði verið sérsniðin fyrir þig. Það breytti engu þótt myrkrið væri skollið á og brautin rennisleip, eftir rigningu dagsins. Þú varst Sjúmakker Íslands og við fylgdumst með þér af aðdáun og áttum ekki orð yfir það, hversu fimur okkur fannst þú vera á bak við stýrið. Ég sem er vanur að nota öryggisbelti, lét ég bara hanga niður með sætinu. Mér fannst algjör óþarfi að spenna það á mig, því mér fannst ég svo öruggur með þér í bíl.
Það átti við um okkur öll, sem vorum með þér í bílnum. Ljósastaurarnir þeyttumst framhjá og manni fannst eins og það væri bara einn langur ljósastaur á Reykjanesbrautinni, því þú ókst svo hratt. Ég man að stelpurnar skríktu af gleði, því þeim fannst þú svo svalur og ég fann það á mér, að þær ætluðu allar að "negla" þig í lok ferðar. Ég horfði á þig öfundsjúkur, því þú bjóst við svo mikla kvennhylli. Djöfull get ég ekki beðið eftir því að fá bílprófið, því þá skulu þær allar verða mínar.

Ég mun aldrei gleyma því þegar ég sá þig í dauðateygjunum, eftir að þú þeyttist út úr bílnum, eftir að hafa keyrt á bílinn, sem kom úr gagnstæðri átt. Eitt lítið augnablik misstir þú stjórn á bílnum og nýji bíllinn ónýtur og Reykjanesbrautin blóði drifin. Ég mun heldur aldrei gleyma stelpunni, sem sat frammí með þér. Fallega brúnhærða stelpan, sem skríkti og hló svo dátt, mun aldrei hlægja aftur. Þarna lá hún út um allt í bílnum. Hún var eins og kramin fluga, sem var búið að slíta af vængi og fætur. Ég mun aldrei gleyma stelpunum, sem sátu aftur í með mér. Þær lifðu af, en munu aldrei lifa aftur eðlilegu lífi, nema eðlilegt líf sé að liggja á sjúkrastofnun, það sem eftir er og vera grænmetishausar. Ég mun aldrei gleyma gömlu hjónunum, sem voru í bílnum, sem þú keyrðir á. Þau hefðu auðveldlega geta átt 10 - 15 góð ár í viðbót. Ég mun aldrei gleyma því, hvernig mér leið þarna aftur í. Ég gat mig hvergi hreyft og get það ekki ennþá, því ég er fastur í hjólastól og er algjörlega háður öðrum, því ég get hvorki fætt mig né klætt. Nú mun ég aldrei fá bílprófið, sem ég þráði svo heitt.... né kvennhyllina.

Ef þú heldur að þetta sé allt, þá er ég bara rétt að byrja. Hvað með móður þína og föður, sem elskuðu þig svo heitt? Hvað með systkini þín, sem dáðu þig og horfðu upp til þín? Hvað með ömmu þína og afa, sem voru svo stolt af barnabarninu sínu? Hvað með alla vini þína, sem gátu varla verið án þín?
Ertu tilbúinn að steypa öllu þessu fólki í sorg, sem er jafnvel óyfirstíganleg? Hvað með ættingja allra hinna, sem þú stefndir í hættu og myrtir? Hvernig heldur þú að það sé að vera viðstaddur jarðaför síns eigins barns? Hvernig heldur þú að það sé að koma í heimsókn á sjúkrahúsið, þar sem barnið þitt liggur, með næringu í æð og í dái, og á aldrei möguleika aftur á eðlilegu lífi? Hvernig heldur þú að það sé að þurfa að fæða, klæða og skeina barninu sínu, langt fram á fullorðinsaldur?

Hefði ekki bara verið betra að keyra á löglegum hraða eða var "kúlið" alveg að drepa þig? Það gerði það reyndar á endanum.

Höf. Garðar Örn Hinriksson

Smá leikurKaritas Jónsdóttir

Rakst á þetta á síðunni hennar Hugrúnar, skemmtilegur leikur í prófatíð, endilega prófið heima :)

1. Opnaðu lagasafnið þitt (iTunes, Winamp, Media Player, iPod, o.s.frv.)
2. Ýttu á uppstokkun (shuffle)
3. Ýttu á spila
4. Skrifðu nafnið á laginu og listamanninn hjá hverri spurningu
5. Þegar þú færð nýja spurningu ýttu þá á næsta lag
6. Ekki svindla og þykjast vera töff…

Þetta er lífið mitt:
Opnunaratriði: Dag sem dimma nátt - Í svörtum fötum 
Þegar þú vaknar
: Ljósvíkingur - Mugison og Hjálmar (notalegt lag að vakna við)
Fyrsti skóladagurinn: Radio GA GA  - Queen

Að verða ástfanginn: MMMBop - Hanson (HAHA ..... )

Slagsmálalag: Hit the Road Jack  -  Ray Charles

Að hætta saman: Colorful - Rockstar movie

Árshátíð: Bara í Nótt - Nylon
Lífið: Flash - Queen (hehe dramatískt líf?)

Andlegt áfall (taugaáfall): All out of Luck - Selma  (aj aj hehe)
Að keyra: Vertu ekki að plata mig - Björgvin Halldórs og Sinfó (Stuð!!!!! )

Afturhvarf (Flashback):  UFO - Stuðmenn

Að taka aftur saman: Universally Speaking - Red Hot Chili Peppers (?)

Brúðkaup: Tvær stjörnur (awwww... flott lag =)

Fæðing barns: Princes of the Univerce - Queen (hheheh... it´s a boy?)
Lokabarátta: You belong to me - Björgvin Halldórs og Sinfó ft. Krummi (úff eitt fallegasta lag ever.... svoo fallegt!)
Dauðaatriðið: Skammdegissól - Íslensku dívurnar (líka flott lag... vá ég myndi grenja yfir þessum kafla myndarinnar!!)
Jarðarfararlag: Get ekki meira - Nylon (AAAAAAAHAHAHAHAAHAHAHA )
Lokalag (credit listi): What´s going on - 4 non blondes (kúl kreditlag)


Jámm svona er lífið mitt.... frekar viðeigandi margt, nema kannski jarðafaralagið? eða hvað... ahaha... !  Endilega gerið svona lista á ykkar bloggi, þetta er geggjað fyndið! ;)

Jæja best að halda áfram í lærdómnum, próf á morgun! wish my luck!

snjór og klór!Karitas Jónsdóttir

Ætlaði ég að vera dugleg að blogga? ha ha .... góð tilraun samt?

Ég fæ alveg gleði í hjartað að horfa útum eldhúsgluggann minn núna, yndislegur snjór yfir öllu, krakkar að leika sér, kasta snjóboltum og henda sér í snjóinn, áhyggjulaus. Verið að draga einn bíl úr skafli... bara yndislegt. Vá hvað ég elska að vera inni í svona veðri.
Reynda líka gaman að vera úti að leika sér, vel dúðuð og haga sér eins og krakki.
Minnir mig bara á þegar Ragnheiður og Hafdís komu og dúndruðu snjóbolta á gluggann á herberginu mínu á Furugrundinni þegar við vorum á 1.ári í FVA. Ég var heima, samviskusöm að læra fyrir enskupróf, en þær, komu og drógu mig út að leika í snjónum! Helena kom svo líka og joinaði!! Vá ég held að ég eigi aldrei eftir að gleyma þessu. Fórum uppá stóratún og vorum þar í nokkra klukkutíma að leika okkur í snjónum!!  Góð minning

Smá nostralgíufílingur í gangi.
Nú eru 3 vikur í próf. Hlutapróf í efnafræði á miðvikudaginn, flutningur á stóra rekstrarfræðiverkefninu á föstudaginn og svo bara próflestur ofaní fyrirlestra og skiladæmi. Ekkert upplestrarfrí, bara harkan sex Glottandi  5 próf, byrja 12.des og búin kl 16:30 21. des hehe.

Svo byrjuðu Garpasundæfingarnar í síðustu viku. Á mánudaginn var brjálað veður en við mættum 4 og fórum ofaní. Syntum 2,4 km ! Hörku gaman bara. Reyndar smá svona dejavu, brjálað rok, dótið að fjúka, Guðgeir með munnræpu, þetta same old same old! Enda er það ástæðan fyrir því að maður er að fara aftur í þetta, félagsskapurinn! Fáum bara smá hreyfingu í bónus og nauðsynlegann skammt af klór. Ekki frá því að klórtankurinn hafi verið kominn undir hættumörk í líkamanum.

Best að koma sér í lærdómsstuðið, ekki seinna vænna. Fínt að vera inni að læra í svona veðri...

hasla la vistalalalallal  ...




hćj hćjKaritas Jónsdóttir

Þetta blogg hjá mér er nú farið að verða eitthvað djók Skömmustulegur Er frekar löt við að skrifa eitthvað hérna niður.

Um helgina tók ég því bara rólega, fór á vakt eftir skóla á föstudag og tók því rólega um kvöldið. Mamma og Salome fóru í sumarbústað á föstudaginn og ég, Þórður og pabbi fórum til þeirra á laugardaginn. Palli, Hrefna, Viktoría og Sara og Unnar og Aníta komu líka á laugardaginn.

Bústaðurinn var á Efri-Reykjum, voða kósí að komast aðeins í bústað, slappa af í pottinum, horfa á stjörnurnar og norðurljósin og borða góðann mat Hlæjandi i love it. Ekki skemmdi að hafa Söru sætu og Viktoríu með til að knúsa og kjassa! Þær eru nú meiri rúslurnar!

Sætu spætur!!!!


Við Þórður tókum svo smá túrista rúnt með Unnari, Anítu og Salome, og kíktum á Gullfoss og Geysi enda ótrúlega langt síðan maður sá þessa staði


Svo brunuðum við bara í bæinn, kíktum við í Smáralind og svo út að borða, fínasta helgi barasta

Núna er ég bara í eyðu á milli tíma, önnin flýgur áfram og prófin nálgast óðfluga. Ég er samt nokkuð bjartsýn á prófin enda ágæt önn so far. Auðvitað mætti maður alltaf vera duglegri að læra heima en það þýðir ekki að væla yfir því hehe Skömmustulegur 

Segi þetta nóg í bili, endilega skrifið komment hjá mér. það er svo gaman..... 

verđ ađ bloggaKaritas Jónsdóttir

Ég held ég komist bara ekki hjá því að blogga núna. Asnaðist til að koma til reykjavíkur í tíma, sé mjög svo eftir því núna!!! Gooood hvað sumir kennarar geta verið úti á þekju !!! Krotandi fram og til baka á töflunni og röflandi ofan í bringu á sér...!

En í morgun fékk maður smá slapp í andlitið um að veturinn væri kominn þar sem strætó fór ekki suður fyrstu 3 ferðirnar útaf roki á Kjalarnesinu.... Æjæj ég VARÐ að fara heim og lúlla meira. Það versta var að ég átti að vera að gera hópverkefni um morguninn en komst ekki vegna veðurs! Maður verður víst að bíta í það súra epli að komast ekki alltaf suður, það er þá ókostur við að búa á Skaganum. haha

Núna fer að verða smá brjálæði í skólanum, önnin hálfnuð og verkefnin hrannast upp. Aðeins 8 helgar í próf! OMÆÆÆ!! Próftaflan komin og þau raðast ágætlega upp, er reyndar ekki búin fyrr en 21 des og þá tekur vinnan við, þannig að jólaundirbúningur verður bara að bíða til næsta árs... odemm. Það er meira að segja næturvakt á aðfangadag hjá mér. Kemur í ljós hvort maður verður á lífi eftir prófin og sjá þá til hvað maður vinnur mikið :)


Svona er próftaflan:
12.des: Efnisfræði
15.des: Almenn Efnafræði
18.des: Samfelldaraflfræði
19.des: Rekstrarfræðoi
21.des: Stærðfræðigreining 2b

Sounds good ;)


En Birna hefur rétt fyrir sér, maður nennir bara ekki að bloggar þegar maður er i skóla! Hef líka frekar lítið að blogga um.

Ég er stungin af úr þessum tíma áður en ég hengi mig á tölvusnúrunni!!!

en ađ vinna, ţađ er eitthvađ minnaKaritas Jónsdóttir

Síðustu helgar búnar að fara í rugl, menningarferðin með vinnunni um síðustu helgi og um þessa helgi var það haustferð Naglanna á föstudag og afmæli hjá Regínu í gær. Allt mjög skemmtilegt, á mismunandi hátt, enda mjög ólíkir hópar fólks.

Ég fann símann minn aldrei svo ég splæsti bara í nýjum, nokia 7360, algjör beauty. Gallinn er hins vegar sá að nú er ég ekki með nein númer í símanum. Þeir sem telja sig eiga heima í símanum hjá mér mega senda sms eða hringja svo ég hafi númerin. Ég er ennþá með gamla númerið :)

Nenni ekki að blogga meira í bili. Hef ekki það margt að segja.

ta ta

Ađalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hlakkaru til jólanna?

Innskráningar kubbur